Miðnæturhlaup- Suzuki

Vil minna alla á sem að ætla að taka þátt í Miðnæturhlaupi Suzuki að skrá sig sem fyrst á, http://marathon.is/midnaeturhlaup endilega skráið ykkur sem fyrst en forskráningu lýkur á netinu á miðnætti sunnudaginn 23. júní. Dýrara er að skrá sig á hlaupadegi, fyrir utan meiri fyrirhöfn þá.

5. km. hlaupið hefst kl. 21:50 og 10. km. hlaupið kl. 10:00

Allir hittast fyrir utan Laugardalshöllina kl. 21:20 þar sem Siggi P. verður og stjórnar upphitun og ræðir við fólk um hlaupið.

Nauðsynlegt er að mæta tímanlega til að ná í hlaupagögnin sín og forðast biðraðir, en afhending gagna hefst kl. 16:00 á hlaupadag (mánudag) og endar 30. mín. fyrir hlaup.

Mæli með því að þið sameinist um bíla hér á Álftanesi, til að minnka umferð, og um leið hittast og mynda smá stemningu. Gott væri fyrir þá sem ætla að sækja gögn um leið og viðkomandi fer í hlaupið, að leggja af stað ekki seinna en kl. 20:30.

Sjáumst svo hress á mánudaginn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband