Undirbúningur fyrir hlaupaárið 2015

Hlauparáð Skokkhóps Álftaness hefur komið saman og skipulagt árið með útgáfu Hlaupa- og viðburðadagskrár fyrir árið 2015. Þar eru tiltekin hópamarkmið og önnur áhugaverð hlaup, ásamt því að aðrir viðburðir eins og samskokk, fjallgöngur, grill og haustfagnaður er á dagskránni. Skokkhópurinn fer til Amsterdam í október á árinu og hafa margir þegar skráð sig í hlaupið.

Æfingaáætlun: Siggi P. hefur verið fenginn aftur til að setja saman fyrir okkur æfingaáætlun sem verður hópamiðum í 3 styrkleikum. Er þetta gert til að allir geti byggt sínar æfingar frá svipuðum grunni, en að sjálfsögðu fer ákefð æfinganna eftir styrk hvers og eins. Allir ættu að geta hafið æfingarnar á sama tíma, en að sjálfsögðu fer lengd æfinga eftir magni og markmiði viðkomandi.

Byrjendanámskeið: Byrjendanámskeið verður haldið 13 maí ef næg þátttaka fæst. Siggi P. hefur verið fenginn til verksins ásamt Hinriki Jóni. Er þetta 3ja árið sem Siggi heldur námskeið hér. Námskeiðið gæti líka hentað þeim sem hafa einhvern grunn fyrir.

Innheimta árgjalds fyrir meðlimi SÁ: Innheimta árgjalds hefur verið ákveðin og er gjaldið kr. 10.000 fyrir árið. Skráningu meðlima og greiðslu árgjalds má inna af hendi í gegnum Nóra-greiðslukerfið.

Að hvetja til hlaupa: Við í hlauparáði viljum endilega hvetja alla til þess að auglýsa hlaupahópinn meðal vina og kunningja. Það eru ótrúlega margir sem halda að það að hlaupa sé eitthvað sem þarf mikinn undirbúning fyrir, en það að bjóða fjölskyldu og vinum með sér á æfingu hjá SÁ getur markað kaflaskil hjá fólki til betra lífs.

Allar upplýs um Skokkhóp Álftaness má finna á bloggsíðu skokkhópsins. - http://www.skokkalftanes.blog.is og á facebook undir Skokkhópur Álftaness.


Byrjendanámskeið vorið 2015

Byrjendanámskeið skokkhópsins vorið 2015 hefst með kynningu 7 maí og námskeiðið hefst síðan 13 maí.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Hlaupa- og viðburðadagskrá 2015

Hlaupa- og viðburðadagskrá Skokkhóps Álftaness er komin út og koma þar fram hópamarkmið skokkhópsins og ábendingar um áhugaverð hlaup og aðrir viðburðir.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Hlaupakynning Skokkhóps Álftaness

Fyrir byrjendur og lengra komna....

Skokkhópur Álftaness og Almenningsíþr.deild UMFÁ býður íbúum Álftaness, Garðabæjar og öðrum, óháð búsetu, til kynningarfundar um hlaup og hlaupatengd efni.

Skokkhópurinn hefur fengið til sín Sigurð P. Sigmundsson hlaupaþjálfara og fyrrum íslandsmeistara í maraþonhlaupi til að halda fræðsluerindi um hlaupaþjálfun þar sem farið er  yfir þau grunnatriði sem skipta máli fyrir þá sem eru að byrja að hreyfa sig.

Í erindi Sigurðar verður m.a. fjallað um eftirfarandi:  Tilgang, markmiðssetningu, áhrif hreyfingar, samsetning þjálfunar, æfingaáætlanir, mataræði, útbúnað, meiðslaforvarnir og undirbúning fyrir þátttöku í almenningshlaupum.

Staður og stund:  Í sal Álftanesskóla, miðvikudaginn 7. maí kl. 20:00 (aðgangur ókeypis).

Í framhaldi af þessum kynningarfundi mun skokkhópurinn skrá þá niður sem gætu hugsað sér að taka þátt í sex vikna byrjendanámskeiði er hæfist mánudaginn 12. maí og æfa samkvæmt æfingaáætlun Sigga P. með vikulegum heimsóknum hans og eftirfylgni. En það er háð þátttöku hvort að af því geti orðið.

Já,  kæru skokkarar, nú er lag að koma skipulagi á hlaupin og skella sér á kynningu hjá Sigga P. Vorið er komið og tilvalið að setja sér markmið fyrir sumarið.

Nánari upplýs. diddo@hive.is


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Hlaupa- og viðburðadagskrá 2014!

Hlaupa- og viðburðadagskrá Skokkhóps Álftaness er komin út og koma þar fram hópamarkmið skokkhópsins og ábendingar um áhugaverð hlaup.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Undirbúningur fyrir hlaupaárið 2014

Undirbúningur fyrir hlaupaárið 2014

Hlaupaárið 2014 er hafið og byrjaði bara vel með góðri veðráttu í janúar og það sem liðið er af febrúar. Mæting í hlaup hefur verið vonum framar strax frá byrjun árs og haldist bara viðunandi, miðað við það að oft hefur verið nokkuð hvasst og kalt á köflum, en klaki og hálka hefur einkennt það sem liðið er af árinu. Nú hefur daginn tekið að lengja verulega, svo það er orðið bjart á meðan æfingum stendur. 

 Hlauparáðið hefur komið saman og skipulagt árið með útgáfu Hlaupa- og viðburðadagskrár fyrir árið 2014. Þar eru tiltekin hópamarkmið og önnur áhugaverð hlaup, ásamt því að aðrir viðburðir eins og samskokk, fjallgöngur, grill og haustfagnaður er á dagskránni. Ræddum við líka möguleika á því að skokkhópurinn færi í erlent hlaup á næsta ári "2015", en ekkert var fest í þeim efnum heldur ákveðið að byggja hópinn betur upp í sumar og ákveða svo í haust hvort af yrði.

Æfingaáætlun: Siggi P. hefur verið fenginn til að setja saman fyrir okkur æfingaáætlun sem verður hópamiðum í 2-3 styrkleikum. Er þetta gert til að allir geti byggt sínar æfingar frá svipuðum grunni, en að sjálfsögðu fer ákefð æfinganna eftir styrk hvers og eins. Allir ættu að geta hafið æfingarnar á sama tíma, en að sjálfsögðu fer lengd æfinga eftir magni og markmiði viðkomandi. 

Byrjendanámskeið: Byrjendanámskeið verður haldið í vor á svipuðum tíma og í fyrra (maí-júní) ef næg þátttaka fæst. Höfum við verið í viðræðum við Sigga P. um að taka það að sér því það þótti takast mjög vel í fyrra með mikilli þátttöku og ánægju þátttakenda. Námskeiðið gæti líka hentað þeim sem hafa einhvern grunn fyrir.

Innheimta árgjalds fyrir meðlimi SÁ: Innheimta árgjalds hefur verið ákveðin og er gjaldið kr. 5000 fyrir árið. Skráningu meðlima og innheimtu árgjalds má inna af hendi í gegnum Nóra-greiðslukerfið.

Það er nauðsynlegt að hafa aur á milli handanna til að geta komið á móts við kostnað er fellur til, eins og t.a.m. æfingaáætlanagerð, námskeiðahald, fyrirlestra og uppákomna vegan félagsstarfsins. Einnig er það góð leið til að hafa yfirsýn yfir virka meðlimi hverju sinni. Algengt árgjald hjá skokkhópum landsbyggðarinnar er frá 12-20 þús. Vonum við að hlaupaáhugafólk sýni þessu skilning því markmiðið með gjaldtöku er að styrkja starfið í okkar þágu. 

Að hvetja til hlaupa: Við í hlauparáði viljum endilega hvetja alla til þess að auglýsa hlaupahópinn meðal vina og kunningja. Það eru ótrúlega margir sem halda að það að hlaupa sé eitthvað sem þarf mikinn undirbúning fyrir, en það að bjóða fjölskyldu og vinum með sér á æfingu hjá SÁ getur markað kaflaskil hjá fólki til betra lífs.

 

 

 

 

 


Miðnæturhlaup- Suzuki

Vil minna alla á sem að ætla að taka þátt í Miðnæturhlaupi Suzuki að skrá sig sem fyrst á, http://marathon.is/midnaeturhlaup endilega skráið ykkur sem fyrst en forskráningu lýkur á netinu á miðnætti sunnudaginn 23. júní. Dýrara er að skrá sig á hlaupadegi, fyrir utan meiri fyrirhöfn þá.

5. km. hlaupið hefst kl. 21:50 og 10. km. hlaupið kl. 10:00

Allir hittast fyrir utan Laugardalshöllina kl. 21:20 þar sem Siggi P. verður og stjórnar upphitun og ræðir við fólk um hlaupið.

Nauðsynlegt er að mæta tímanlega til að ná í hlaupagögnin sín og forðast biðraðir, en afhending gagna hefst kl. 16:00 á hlaupadag (mánudag) og endar 30. mín. fyrir hlaup.

Mæli með því að þið sameinist um bíla hér á Álftanesi, til að minnka umferð, og um leið hittast og mynda smá stemningu. Gott væri fyrir þá sem ætla að sækja gögn um leið og viðkomandi fer í hlaupið, að leggja af stað ekki seinna en kl. 20:30.

Sjáumst svo hress á mánudaginn.


Miðnæturhlaup-Suzuki mánud. 24. júní

Vil minna á að skráning er í fullum gangi í Miðnæturhlaup-Suzuki. http://marathon.is/midnaeturhlaup endilega skráið ykkur sem fyrst en forskráningu lýkur á netinu á miðnætti sunnudaginn 23. júní.Dýrara er að skrá sig á hlaupadegi, fyrir utan meiri fyrirhöfn þá.

"Þegar þið skráið ykkur þá er spurt um hlaupahóp, og þá hlaupið þið að sjálfsögðu undir merkjum Skokkhóps Álftaness."


Miðvikudagsæfingin

 

Þá er það morgundagurinn. Það var vel mætt á mánudaginn og vel látið af æfingunni.

Lagt upp frá íþróttamiðstöð kl.17:30 Farnir verða 3-6 km. á rólegum hraða.

 

Þeir sem eru lengra komnir og hafa verið að hlaupa í nokkra mán. eða ár fara 8-10 km. 

 

Lilja og Friðþjófur fylgja ykkur eftir á miðvikudögum. Veðurspáin er 13°c og nokkur vindur, hlýtt og ekki eins hvasst og á mánudaginn.

 

Sjáumst hress og kát.


Almennur fróðleikur fyrir hlaup

Hér má sjá almennan fróðleik fyrir hlaup
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband