Undirbúningur fyrir hlaupaárið 2015

Hlauparáð Skokkhóps Álftaness hefur komið saman og skipulagt árið með útgáfu Hlaupa- og viðburðadagskrár fyrir árið 2015. Þar eru tiltekin hópamarkmið og önnur áhugaverð hlaup, ásamt því að aðrir viðburðir eins og samskokk, fjallgöngur, grill og haustfagnaður er á dagskránni. Skokkhópurinn fer til Amsterdam í október á árinu og hafa margir þegar skráð sig í hlaupið.

Æfingaáætlun: Siggi P. hefur verið fenginn aftur til að setja saman fyrir okkur æfingaáætlun sem verður hópamiðum í 3 styrkleikum. Er þetta gert til að allir geti byggt sínar æfingar frá svipuðum grunni, en að sjálfsögðu fer ákefð æfinganna eftir styrk hvers og eins. Allir ættu að geta hafið æfingarnar á sama tíma, en að sjálfsögðu fer lengd æfinga eftir magni og markmiði viðkomandi.

Byrjendanámskeið: Byrjendanámskeið verður haldið 13 maí ef næg þátttaka fæst. Siggi P. hefur verið fenginn til verksins ásamt Hinriki Jóni. Er þetta 3ja árið sem Siggi heldur námskeið hér. Námskeiðið gæti líka hentað þeim sem hafa einhvern grunn fyrir.

Innheimta árgjalds fyrir meðlimi SÁ: Innheimta árgjalds hefur verið ákveðin og er gjaldið kr. 10.000 fyrir árið. Skráningu meðlima og greiðslu árgjalds má inna af hendi í gegnum Nóra-greiðslukerfið.

Að hvetja til hlaupa: Við í hlauparáði viljum endilega hvetja alla til þess að auglýsa hlaupahópinn meðal vina og kunningja. Það eru ótrúlega margir sem halda að það að hlaupa sé eitthvað sem þarf mikinn undirbúning fyrir, en það að bjóða fjölskyldu og vinum með sér á æfingu hjá SÁ getur markað kaflaskil hjá fólki til betra lífs.

Allar upplýs um Skokkhóp Álftaness má finna á bloggsíðu skokkhópsins. - http://www.skokkalftanes.blog.is og á facebook undir Skokkhópur Álftaness.


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband