Vorblíða að vetri til

Vel hefur viðrað til hlaupa seinustu viku, svo mjög að um vorblíðu hefur verið að ræða. Hefur mannskapurinn  því verið fremur léttklæddur á hlaupunum og þátttaka með betra móti.

Hlaup seinustu viku..

Mánudagur: Birna, Sigurlaug, Jói, Ágúst og ritari framkvæmdu hlaupaæfingar og spretti við Sóta og fóru Álftaneshring.

Miðvikudagur: Birna, Lilja, Dóra, Sævar og ritari fóru ýmist Álftanes-, Das- og Túnahring.

Laugardagur: Ágúst, Sævar, Anna, Sissa, Rakel, Birna, Lilja, Villi og ritari fóru ýmist Álftanes-, Garðaholts-, Das- og Suðurbæjarlaugarhring. (4.-17. km.).

Æfingar næstu viku verða ákveðnar fyrir hvert hlaup og ráðast af þátttöku hverju sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband