Færsluflokkur: Seinasta vika !

"Hvar eru hlaupaskórnir mínir, elskan" ?

Nú er aftur friður til hlaupa eftir vægt kuldakast og öskufall, sem ekki er ákjósanlegt fyrir lungun. Mikið úrval almenningshlaupa er í gangi um þessar mundir og því tilvalið að taka stöðuna á sér og taka þátt í þeim. Ágúst og Villi tóku þátt í Vals-hlaupinu á laugardaginn og var ritari á staðnum til að fylgjast með, var ætlun þeirra að ná sínum markmiðum er nánast tókst. Var gaman að vera á staðnum því það er ekki síður skemmtilegt að standa á hliðarlínunni og sjá góða félaga koma í mark.

Fyrir þá sem hafa hug á að komast á hlaupanámskeið hjá hlaup.is þá er næsta námskeið  dagana 6, 7, og 8 júní. Nokkrir meðlimir SÁ hafa farið á slíkt námskeið sem er fyrir byrjendur sem og lengra komna og láta vel af.

Hlaup seinustu viku voru eftirf..

Mánudagur: Ágúst, Villi og ritari fóru Jörfa- og Stóran- Skátahring í hávaðaroki.

Miðvikudagur: Ágúst, Villi, Sævar og Birgir fóru Dashringinn - Dista, Anna, Kristín og ritari fóru Garðaholtið og bættu við sig ýmist Túna- eða Skátahring.

Laugardagur: Birna, Dista, Lilja, Sigurl., og Kristín fóru Álftanes- og Skátahring og komu sumir við á Bessastöðum - Anna, Hildur og Jói fóru Garðaholtið - Ritari fór með Sævari og Birgi Vífilsstaðavatnið sem er 21 km. og því ágætisleið fyrir þá sem ætla 1/2 maraþon í sumar - Ágúst og Villi Tryggva fóru í Vals-hlaupið og kepptu þar í 10 km. hlaupi og gekk vel.

Tillögur að æfingum næstu viku...

Mánudagur: Tempóhlaup með upphitun og niðurskokki. Miðvikudagur: Sprettir Laugardagur: Lengri hlaup.

 


Hvað skal gert í sumar?

 

Núna fer að vera tímabært fyrir þá sem ætla sér einhver markmið í hlaupum að fara að huga að æfingaáætlunum. Er hægt að nálgast tillögur að áætlunum víða á netinu heima og erlendis. Ágætis áætlanir eru í Hlaupahandbókinni sem margir hafa notast við. Einnig er hægt að panta áætlun gegn greiðslu t. d. hjá hlaup.is. Þar er tekið mið af einstaklingnum og sniðið að hans þörfum. Svo eru fleiri sem taka þann kostinn að finna áætlun með öðrum svo félagsskapur sé til staðar og stuðningur.

Mánudagur: Sævar, Ágúst og ritari fóru Dashring og ritari Álftaneshr.  að auki - Dista og Lilja fóru Garðaholtið - Jói, Sigurlaug, Björn og Sissa fóru Álftaneshring - Anna B. fór Skátahring.

Miðvikudagur: Ágúst, Sævar, Birgir, Sissa, Jói, Villi, Lilja, Dista og ritari fóru Bessastaðanes, Birna og Sigurlaug lögðu líka af stað en Birna datt illa við Seylu og fylgdi Sigurlaug henni til baka.

Laugardagur: Hef ekki enn heimildir fyrir þessu hlaupi vegna fjarveru minnar.

Æfingar næstu viku..

Mánudagur: Upphitun og svo nokkrar skokkæfingar, síðan er hlaup.

Miðvikudagur: Tempóhlaup með upphitun og niðurskokki.

Laugardagur: Áhersla á lengri hlaup. 

 


Almenningshlaup til gamans og samanburðar

Þátttaka seinustu viku er búin að vera í meðallagi góð og hafa nokkrar nýjar manneskjur látið sjá sig sem er gleðilegt. Lilja, Andrea og Gréta kláruðu hlaupanámskeið í vikunni og ættu þær að geta farið að miðla reynslu sinni með okkur næstu daga. En fyrir þá sem hafa hug á að komast á námskeið þá verður eitt slíkt fljótlega í byrjun júní.

Eins og kom fram í seinustu viku þá töldum við upp nokkur almennings-hlaup sem okkur þykir áhugaverð. Ágúst, Bjarni og ritari fóru á eitt þessara hlaupa á laugardaginn og höfðu mikla skemmtun af í blíðskapaveðri og góðum aðstæðum á Seltjarnarnesi. Mæla þeir kappar eindregið með þessum hlaupum sem eru skemmtileg og bjóða upp á nýjar hlaupaleiðir.

Hlaup seinustu viku voru eftirf....

Mánudagur: Íris, Birna, Jói, Sigurlaug, Pálína (ný), Hrefna og ritari fóru Álftaneshring og lengdu margir í með ýmsum hætti. Hituðum upp að Sóta og teygðum, tókum svo nokkra spretti í brekkunni - Anna B. (sem er ný) fór Túnahring.

Miðvikudagur: Villi T., Sævar, Birgir og ritari fóru Dashring - Birna, Dista, Baldur og Jói fóru Álftaneshring með viðkomu á Bessastöðum.

Laugardagur: Birna, Lilja og Sigurlaug fóru 2* Álftaneshringi með viðkomu að hliði og Skátahring að auki - Sævar, Þórarinn, Birgir og Sissa fóru A. Hansenhring - Ágúst, Bjarni og ritari tóku þátt í Neshlaupinu 15 km á Seltjarnarnesi.

Hlaupaæfingar næstu viku eru þannig...

Mánudagur: Hlaup með nokkrum sprettum í. Upphitun og niðurskokk.

Miðvikudagur: Tempóhlaup með upphitun og niðurskokki.

Laugardagur: Lengri hlaup.

 

 


Loksins eftir langa bið....

"Loksins, loksins", kom að því að það rættist úr veðrinu, og ekki að spyrja að því að um leið bættist í hópinn. Við vorum mjög dugleg í vikunni, er við bárum í hús pésa sem var ætlað það að kynna hópinn fyrir Álftanesbúum. Hefur það orðið til þess að við höfum fengið mikið af fyrirspurnum ásamt nýjum heimsóknum í hlaupin sem er mjög ánægjulegt.

Við höfum sett upp lista yfir þau hlaup á höfuðborgarsvæðinu sem okkur þykir áhugaverð og viljum hvetja þá meðlimi SÁ til þess að reyna að tala sig saman um og mæta á. Er sá listi undir liðnum "Viðburðir SÁ" í færsluflokkunum hér til hliðar. 

Hlaup seinustu viku voru þannig....

Mánudagur: Óli, Hrefna, Anna, Jói, Sævar og ritari fóru Garðaholtið - Sigurlaug og Birna fóru Álftanes- og Skátahring - Villi Tryggva fór Dashringinn.

Miðvikudagur: Óli, Hrefna, Ágúst, Birna, ritari og Þorbjörg sem er ný í hópnum fóru Jörfahring - Björn sem er nýr í hópnum fór Álftaneshring ásamt ungri dóttur sinni sem elti hann á hjóli.

Laugardagur: Ágúst, Sævar, Anna, Villi T., ritari og Þórarinn sem er nýr í hópnum fóru A. Hansenhringinn og bætti ritari við Bessastaðanes- og Skátahring - Sigurlaug og Birna fóru Álftaneshring með viðkomu á Bessastöðum.

Hlaupaæfingar næstu viku eru þannig...

Mánud: Sprettir með teygjum, upphitun og niðurskokki.

Miðvikud: Tempóhlaup með upphitun og niðurskokki.

Laugard: Áhersla á lengri hlaup með rólegu tempói. 


SÁ í markaðssetningu, "betra af stað farið en heima setið"

Í byrjun vikunnar ætlum við félagar í SÁ að bera út kynningarblað um Skokkhóp Álftaness í hvert hús hér á Álftanesi. Er það von okkar að það geti orðið til þess að fleiri bætist í okkar ágæta hóp og njóti þess að vera í félagsskap við náttúru og menn. Munum við verða í sambandi við ykkur þegar að dreifingu kemur.

Ótrúlega umhleypingasömum veður-kafla er vonandi lokið með snjódrífu er almættið skellti yfir okkur svona í endan á annars ekkert slæmum vetri. En svona til gamans þá var janúar mjög góður svo hlaupamagn SÁ mældist mun meira heldur en í apríl. Ekki það að við séum búin að vera eitthvað að vola sí og æ, því SÁ inniheldur marga einstaklinga sem láta ekkert á sig fá er hindrað getur för þeirra um lendur Álftaness, heldur magnast við mótlætið. 

Hlaup seinustu viku voru eftirf.... 

Mánudagur: Ritari var einn í þessu hlaupi og fór Dashringinn. (Aðrir lágu á meltunni).

Miðvikudagur: Birna, Sigurlaug og Dista fóru Álftanes- og Skátahringinn - Ágúst, Villi og Sævar fóru Jörfahring - Jói og ritari fóru stuttann Jörfahring.

Laugardagur: Dista, Birna, Sigurlaug, Anna og Sissa fóru Bessastaðanesið í snjókomu og logni - Ágúst, Jói og Sævar fóru A. Hansenhringinn.

Æfingaáætlun næstu viku er.....

Mánudagur: Tempóhlaup með upphitun og niðurskokki.

Miðvikudagur: Hlaup með 4-8 sprettum, fjöldi spretta fer eftir lengd hlaupsins.

Laugardagur: Áhersla á lengri hlaup. 


Gleðilegt sumar og páska !

Sem betur fer erum við íslendingar með ríkt langlundargeð þegar kemur að veðri sem reynist yfirleitt vel og hefur nýst sérstaklega seinustu vikurnar. Hlaup eru því enn stunduð af eljusömu fólki og er skemmst frá því að segja að skemmtilegt hlaup var á sumardaginn fyrsta, Viðavangshlaup- ÍR og tóku 5 félagar úr SÁ þátt í því og létu vel af. Er þetta fyrsta vorhlaupið, en þau eiga eftir að vera allmörg og er skorað á meðlimi SÁ, að vera duglega að taka þátt því skemmtanagildið er ærið, fyrir utan það að þetta eru keppnir sem allir geta gælt við með misjöfnum markmiðum.   

Hlaup seinustu viku voru eftirf....

Mánudagur: Dista og Birna fóru Blikastígs-, Álftanes- og Skátahring - Anna og Íris fóru Garðaholtið - Ágúst og ritari fóru Das- og Túnahring.

Miðvikudagur: Anna fór Álftaneshring - Ágúst fór Garðaholtið - Ritari hljóp inni á bretti.

Fimmtudagur: Anna, Hildur, Bjarni, Villi Tryggva og ritari tóku þátt í Víðavangsklaup- ÍR (5km) og skemmtu sér vel.

Laugardagur: Sigurlaug og Birna fóru Álftanes- og Skátahring - Anna, Ágúst og ritari fóru A. Hansenhringinn og fór ritari tvo Álftaneshringi að auki.

Æfingar næstu viku hljóða þannig....

Mánudagur: Jafnt tempóhlaup með upphitun og niðurskokki.

Miðvikudagur: Hlaupin ákveðin vegalengd með nokkrum sprettum inni í hlaupinu. Upph. og niðursk.

Laugardagur: Farnar lengri vegalengdir en venjulega.


Vonandi kemur "fljótlega", betri tíð með blóm í haga!

Einhvernveginn hafa draumar og væntingar um vor og betri tíð fokið út um gluggann í bili. Ekkert lát er á veðurhamnum endalaus vindur og væta í kortunum svo ekki dugar að vera með neinn pempíuhátt í hlaupunum um þessar mundir, heldur klæða sig vel og sætta sig við aðstæður.   

Hlaup seinustu viku:

Mánudagur: Anna og Ágúst fóru Dashringinn - Sissa fór Garðaholtið - Birna, Dista og Villi Tryggva fóru Álftaneshring með viðkomu á Bessastöðum - Ritari fór A. Hansenhringinn.

Miðvikudagur: Ritari lá heima í flensu og hefur ekki heimildir fyrir hlaupinu þennan dag.

Laugardagur: Birna, Dista og Sigurlaug fóru Álftanes- og Skátahring - Anna fór Garðaholtið - Ritari fór að Ásvöllum, um Engidal og Garðaholtið til baka og endaði með Túnahring.

Æfingaáætlun næstu viku hljóðar svo....

Mánudagur: Tempóhlaup með upphitun og niðurskokki

Miðvikudagur: "Fartlek", mislangir sprettir teknir inni í hlaupi. Sá fremsti stjórnar lengd og fjölda sprettanna

Laugardagur: Lengri hlaup


Kosningahvellur í enda viku !

Vindasöm vika endar með miklum hvelli í stíl við það sem á undan hefur gengið. Aðeins hefur dregið úr þátttöku en vonandi fer fjölgandi aftur því meðlimir verða að fara að ná sér í innlegg fyrir páskunum, eggjaát og fleira kruðerí framundan. 

Hlaup seinustu viku voru þannig....

Mánudagur: Anna fór Dashringinn - Birna, Dista, Sissa, Villi og Ágúst fóru Garðaholtið og sumir Skátahr. að auki - ritari fór Das- og Skátahring.

Miðvikudagur: Lilja, ritari og Villi fóru Álftaneshringinn - Ágúst fór Álftanes- og Garðaholtshring - Bjarni fór Das- og Álftaneshring.

Laugardagur: Birna, Sigurlaug og Jói fóru Álftaneshr. og Jói kom við á Bessastöðumað auki - ritari fylgdi Írisi að Garðaholti sem hún kláraði en sjálfur fór hann A. Hansen- og 2*Álftaneshring.

Hlaupaæfingar næstu viku hljóða þannig:

Mánudagur: Upphitun, sprettir og niðurskokk.

Miðvikudagur: Upphitun, tempóhlaup og niðurhlaup.

Laugardagur: Róleg lengri hlaup.


Íbúum Álftaness fjölgar ört !

Það er nú ekki lengur hægt að bera það fyrir sig að veðrið sé svo leiðinlegt þegar kemur að ákvörðun um það að hlaupa, eða ekki hlaupa. Veðrið er komið í vorgírinn og bjart er til 9 á kvöldin. Húsbændur og hjú eru farin að rótast í vorverkunum, þröstur syngur í trjánum og hver farfuglinn af öðrum kemur inn til lendingar. Já það er ekki laust við það að allt sé að gerast þessa stundina, en staðfest er að allavega 3 lóur við Skógtjörn og einn syngjandi Þröstur í Sviðholtsvör séu á meðal íbúa vor þessa stundina.

Kippur er kominn í hlaupin hjá SÁ og er nú svo komið að varla er bíl að sjá á ferðinni þegar skokkhópurinn liðast um stígana. Gangandi fólk og aldraðir hafa þurft að hafa hægt um sig meðan þessu fer fram enda er hraðinn mikill því SÁ-menn eru í góðri æfingu eftir veturinn.

Hlaup seinustu viku eru eftirf.....

Mánudagur: Anna, Dista, Sissa, Íris, ung stúlka, Ágúst, Villi T., Gísli, Þórhallur, Jói, og ritari hituðu upp að Sótabrekkunni og teygðum þar. Tókum svo 2-4*200m spretti í brekkunni sem tók vel á, flestir kláruðu svo Álftaneshringinn en Þórhallur fór einnig Garðaholtið ásamt ritara.

Miðvikudagur: Dista, Birna, Lilja og Villi T. fóru Álftaneshring með viðkomu að Bessastöðum - Ágúst og ritari fóru Dashringinn.

Laugardagur: Birna fór Álftanes- og Stóran Skátahring - Jói fór Dashringinn - Ágúst og ritari fóru A. Hansen- og Álftaneshringinn.

Æfingar næstu viku eru eftirf....

Mánudagur: Upphitun, teygjur og brekkusprettir

Miðvikudagur: Upphitun, tempóhlaup og niðurhlaup

Laugardagur: Lengri hlaup 

   

 

 


Vor í lofti

Það má með sanni segja að það sé vor í lofti þessa dagana. Seinasta él gerði í hlaupinu á mánudaginn en 10 manns mættu í það hlaup og létu veðrið ekki hafa áhrif á sig, heldur þrömmuðu Álftaneshringinn svo ákveðið að það mátti halda að þeim hefði verið lofað vorinu næsta dag. Og það kom svo í ljós í miðvikudagshlaupinu að viðsnúningur hafði orðið í veðrinu, mikil blíða skollin á sem varir enn og til að toppa þessi tíðindi þá fréttist af þremur Lóum við Skógtjörn um helgina. Minntist ég á það við hann Ágúst í hlaupinu á laugardaginn að ég hefði undanfarin ár heyrt í lóunni í kringum 23. mars sem virðist ekki vera fjarri lagi.

Hlaup seinustu viku....

Mánudagur: Anna, Villi Álftnesingur, Gréta, Bjarni, Íris, Sigurlaug og Jói fóru Álftaneshring og bættu sumir við sig Skátahring - Birna og Dista fóru Álftaneshr. og komu við á Bessastöðum í leiðinni - ritari fór 2*Álftaneshring og Skátahring að auki.

MIðvikudagur: Jói, Ágúst, Sigurlaug, Villi Tryggva, Lilja, Anna, Íris og ritari fóru Álftaneshring og komu sumir við á Bessastöðum, bættu við sig Skátahring og fóru sumir um Breiðumýri.

Laugardagur: Sigurlaug, Birna, Sissa og Villi Tryggva fóru Álftanes- og Skátahring - Ágúst og ritari fóru A. Hansenhring og bætti ritari við sig Álftaneshr. að auki.

Æfingaáætlun vikunnar: Mánudagur brekkusprettir - Miðvikudagur tempóhlaup - Laugardagur lengri hlaup 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband