Hvar voru allir ?
27.2.2011 | 23:34
Vikan byrjaði vel líkt og fyrri vika með ágætis þáttöku vel mætt á mánudegi og miðvikudegi, en botninn datt svo skyndilega úr á laugardagsmorgninum er ritari stóð einn og yfirgefinn í anddyri Alladíns. Já það hafði skollið á snjóbylur um nóttina er greinilega hafði náð að splundra litla sæta hlaupahópnum svo mjög að fátt eitt minnti lengur á hópinn annað en ritari vor sem rýndi út í sortann með von um meðreiðarsvein sem ekki lét sjá sig. Var reyndar sjálfur búinn að velta mikið vöngum yfir því fyrr um morguninn, með sængina yfir hausnum, hvort ég ætti nokkuð að mæta í hlaupið því ég var búinn að vera með kverkaskít og kulda í skrokknum undanf. tvo daga. En svo gat ég ekki hugsað mér að láta upplýsast um þann aumingjaskap í mér að mæta ekki í hlaup og vera rakkaður niður af félögum vorum sem biðu eftir mér í anddyrinu. Reyndist ótti minn ástæðulaus, en ég sá það seinna á hlaup.com (hlaupadagbókinni) að Ágúst mætti einni mínútu eftir að ég lagði af stað. Sönn hetja þessi Ágúst!
Hlaup vikunnar voru eftirf.....
Mánudagur: Dista, Birna, Lilja, Sissa, Anna, Ágúst, Jói og ritari þrömmuðu öll Bessastaðanesið og bættu við ýmist Álftanes-, Túna-, eða Skátahring - Óli og Hrefna fóru Álftaneshringinn.
Miðvikudagur: Ágúst, Anna, Bjarni, Þórhallur og ritari fóru Garðaholtið og bættu við sig m.a. Túna-, Skáta- eða Álftaneshring. - Lilja, Birna, Dista og Sigurlaug fóru Álftaneshring og bættu einhver við sig Túna-, eða Skátahring.
Laugardagur: Ritari fór Das- og Álftaneshring, Ágúst fór A. Hansenhringinn.
Æfingaáætlun næstu viku: Mánud. Upphitun að Sóta og farnir sprettir 4*200m og Álftaneshringurinn kláraður í niðurskokki. Bætt við að hætti hlauparanns - Miðvd. Tempóhlaup, 1.5km upphitun og svo hlaupið frekar hröðum og jöfnum hraða. Endað á niðurskokki. - Laugard. Lengri vegalengdir farnar.
Flokkur: Seinasta vika ! | Breytt s.d. kl. 23:35 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.