Færsluflokkur: Seinasta vika !

Seinasta vika !

Á mánudeginum var farið í upphitun að hesthúsunum við Mýrarkot, og tókum við nokkra spretti þar. Við vorum einungis fjögur sem mættum í þetta hlaup. Ágúst, Anna T., Birna og Friðþjófur. Sprettirnir tóku á eins og til er ætlast svo fann til í lærum. Birna og Anna T. kláruðu hringinn við Breiðumýri en Ágúst kláraði Álftaneshringinn með mér. Fór ég síðan einn lítinn Jörfahring svona í ábót.

Miðvikudagurinn var heldur fjölmennari, sjö manns  og m. a. einn gestur úr Hafnarfirði, hann Villi vinur okkar Birnu. Við Ágúst ákváðum að taka því rólega því við ætluðum í Powerade hlaupið. Kláruðum við öll Álftaneshringinn. Er við komum inn Eyvindastaðaveginn mættum við Lilju Vattnes sem var að byrja sitt fyrsta hlaup eftir að hafa staðið í meiðslum í einn mánuð. Er þar á ferð okkar helsti drifkraftur sem hefur náð að kasta af sér um 20 kílóum frá því hún byrjaði að hlaupa í byrjun maí síðastl. Var henni vel tekið af viðstöddum.

Á fimmtudeginum fórum við Ágúst saman í Poweradehlaupið. Var um metþátttöku að ræða, ríflega 400 manns. Mjög skemmtilegt hlaup sem við mælum eindregið með. Enduðum í heitu pottunum í þvílíkri mannmergð.

Laugardagurinn var ekki fjölmennur. Einungis Lilja og ég mætt eftir að hafa verið í tíma hjá Jóa í Þrekhópnum. Missti ég þar um 1/2 l. af svita og smá blóð eftir mikið púl. "Bendi viðkvæmu fólki á að halda sig í góðri fjarlægð frá honum Jóa milli kl. 9 og 10 á laugardagsmorgnum."  Hljóp með Lilju að Breiðumýri en hélt sjálfur áfram Garðaholtið og Túnahverfið.      

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband